Íslenski fjárfestirinn Auðunn Már Guðmundsson hefur unnið dómsmál í Bretlandi þar sem fyrrverandi eiginkona hans, breska listakonan Hsiao-Mei Lin, reyndi að halda eftir fasteign þeirra hjóna. Dómari við Hæstarétt í London komst að þeirri niðurstöðu að WhatsApp-skilaboð frá Auðuni Má væru ekki löglega bindandi og gætu því ekki talist framsal á hans hluta í eigninni.