Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu

Samgöngumálin verða án efa eitt af stóru málunum í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Samgöngukerfi borgarinnar ræður ekki lengur við núverandi umferðarmagn. Þetta er að stórum hluta heimatilbúinn vandi.