Donald Trump forseti Bandaríkjanna hótaði því í dag að ICE-fulltrúar myndu taka yfir öryggisgæslu á flugvöllum landsins ef Demókratar samþykktu ekki fjárveitingar til heimavarnarráðuneytisins. Deilan snýst um ráðuneyti heimavarnarmála en TSA, sem sér um öryggisgæslu og vopnaleit á flugvöllum landsins, heyrir undir ráðuneytið. Demókratar á bandaríska þinginu hafa staðið í vegi fyrir fjárveitingunum nema umtalsverðar breytingar verði gerðar á starfsemi þess. Aðgerðir yfirvalda gegn óskráðum innflytjendum í Minnesota-ríki í vetur voru harðlega gagnrýndar en fulltrúar drápu tvo almenna borgara á mótmælum í Minneapolis, þau Renee Good og Alex Pretti. Stuttu síðar var Kristi Noem rekin úr embætti heimavarnarráðherra. Starfsfólk TSA, sem telur um 65 þúsund manns, hefur unnið án launa síðan um miðjan febrúar og er farið að kreppa verulega að, sérstaklega þar sem ferðalög fara að aukast með vorinu. Mikið álag er á fólki og sumir starfsmenn hafa þurft að taka sér aukavinnu sér og sínum til framfærslu og á nokkrum stórum flugvöllum hefur verið safnað gjafakortum og mat fyrir starfsfólk sem á í fjárhagskröggum. ICE, sem heyrir líka undir heimavarnarráðuneytið, hefur ekki orðið fyrir eins miklum áhrifum af fjárskortinum þar sem sú stofnun býr enn að fjárframlögum síðasta árs. Trump sagði á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag að ef demókratar samþykktu ekki tafarlaust fjármögnun myndi hann flytja ICE-fulltrúa á flugvöll þar sem þeir myndu sinna öryggisstörfum. Demókratar á þingi krefjast meðal annars að fulltrúum ICE og landamæravörðum verði bannað að hylja andlit sín við skyldustörf og að dómsúrskurður skuli liggja fyrir áður en farið er inn á heimili eða fyrirtæki. Flugvellir í nokkrum borgum hafa varað farþega við löngum öryggisröðum og hvatt fólk til að mæta fyrr en venjulega.