Vinnumálastofnun tók yfir þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd fyrir tæpu ári og eftir þá breytingu hafa börn í þeim hópi hvorki aðgang að leikskólum, tómstundum né frístundaheimilum. Barnaheill, Save the children á Íslandi, hafa ítrekað gert athugasemdir við þetta fyrirkomulag. „Þetta er það sem við höfum verið að kvarta yfir við ráðuneytið í ár,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla. Bréfin hafa gengið á milli Fleiri hafa viðrað áhyggjur af þessu, umboðsmaður barna sendi félagsmálaráðuneytinu nýverið erindi um hvort þetta samræmdist Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og bað ráðuneytið um að endurskoða þjónustuna. Ráðuneytið svaraði með því að vísa í útlendingalög en samkvæmt þeim eigi börnin ekki rétt á að sækja leikskóla, frístundaheimili eða tómstundir. Barnaheill og umboðsmaður barna óttast um velferð barna í leit að alþjóðlegri vernd. Þau hafa ekki aðgang að leikskóla eða tómstundum og félagsmálaráðherra heitir umbótum. Bannað að leika sér án fullorðinna Í fyrra fékk Barnaheill ábendingu um að ítarlegar reglur hefðu verið settar og hengdar upp í JL-húsinu, þar sem umsækjendur um alþjóðlega vernd búa á vegum Vinnumálastofnunar. Til dæmis að barnaverndaryfirvöldum yrði gert viðvart, væri barn eitt á ferli í stigaganginum, börnum bannað að leika sér án fullorðinna og foreldrum hótað að missa framfærslu sína, brytu börnin reglurnar. Fulltrúar Barnaheilla gerðu athugasemd við reglurnar við Vinnumálastofnun, sem fjarlægði þær úr húsinu. Íbúar buðu fulltrúum Barnaheilla að skoða aðstæður, en þeim var meinað að koma í húsið, að sögn Tótlu. „Vinnumálastofnun hefur borið fyrir sig persónuvernd. En ég sé ekki að þegar fólk vill að við kíkjum í heimsókn, að við fáum að koma í heimsókn.“ Barnaheill héldu námskeið fyrir börnin Að lokum tók Barnaheill af skarið og bauð börnunum upp á tómstundanámskeið. „Við höfum verið í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur með myndlistarnámskeið fyrir börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd og við höfum einnig verið í samstarfi við Borgarleikhúsið,“ segir Tótla. Spurður hvort barnasáttmálinn hafi verið brotinn gagnvart þessum börnum svarar Ragnar Þór Ingólfsson félagsmálaráðherra að hann geti ekki svarað því hér og nú. En það sem ég get svarað er að við munum leggja okkur fram við að kippa þessum málum í liðinn og við tökum gagnrýninni mjög alvarlega. Stefnir að því að börnin komist í leikskóla og tómstundir Komast þessi börn í leikskóla, í frístund og tómstundir? „Ég stefni á að svo verði innan mjög skamms tíma,“ segir Ragnar Þór. „Það sem er mikilvægt er að börnin fái valdeflingu, fái að vera hluti af samfélaginu, jafnvel þó þau séu einungis á landinu í stuttan tíma,“ segir Tótla.