Unglingar frá Grindavík hittust á ungmennaþingi í dag. Þau ræddu mál sem brenna á þeim og nutu þess að hitta vini og gamla skólafélaga. Í ljósi þess að skólastarf hefst aftur í bænum í haust, í fyrsta sinn síðan 2023, var mikil áhersla lögð á skólamál en líka íþróttir og tómstundir. „Við erum bara að safna saman ungmennum úr Grindavík og fá að heyra þeirra raddir, hvað þau vilja gera í framtíðinni og hvernig við ætlum að byggja upp bæinn aftur fyrir okkur,“ segir Pétur Þór Vilhjálmsson, formaður ungmennaráðs Grindavíkur. Þau segja það mikilvægt að fá að hittast í heimabænum. „Það er bara það besta sem maður gerir að fá að koma og hitta vini sína aftur. Að hittast aftur er bara geggjað og við elskum það öll,“ segir Anna Ýr Einarsdóttir varaformaður ungmennaráðsins.