Kristín er Evrópumeistari í klassískum lyftingum

Evrópumótið í klassískum er nú í gangi í Möltu. Kristín Þórhallsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði -84 kg flokkinn í dag. Hún varð Evrópumeistari í samanlögðu og hnébeygju. Kristín lyfti 225 kg í hnébeygju sem er heimsmet í Master 1 flokknum, aldursflokki 40-49 ára. Í bekkpressu lyfti hún 117,5 kg og í réttstöðulyftu 225 kg. Samanlagt fóru því 567,5 kg í loft sem er einnig heimsmet í Master 1 flokknum. Þetta er annar Evrópumeistaratitill Kristínar í samanlögðu því hún vann mótið 2021. Hún fékk silfur 2022 og brons 2023. Þá á hún silfurverðlaun frá heimsmeistaramótunum 2022 og 2023.