Vinstrið hefur staðfest framboðslista sinn í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 16. maí. Flokkurinn er sameiginlegt framboð Vinstri Grænna og Vor til vinstri. Í fréttatilkynningu frá flokknum segir að framboðið endurspegli Reykjavík eins og hún er og að listinn samanstandi af fjölbreyttum hópi Reykvíkinga. „Vinstrið sameinast um þá einföldu sýn að setja Reykjavíkinga í fyrsta sæti. Við leggjum áherslu á stjórnmál sem byggja á samvinnu og samtali og við höfnum sérhagsmunum,“ segir í tilkynningunni. Eins og áður hafði komið fram höfðu efstu sæti verið tilkynnt og er Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti. Í öðru sæti er Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna. „Við ætlum að leggja til lausnir og ráðast í raunhæfar aðgerðir til að takast á við margbreytileg viðfangsefni borgarinnar og borgarbúa og hafa jöfnuð og réttlæti sem okkar aðalsmerki. Borgin sem við ætlum að byggja með fólkinu sem í henni býr er mannvæn og gróðursæl og í henni eigum við öll að geta fundið okkur fallega tilveru,“ segir í tilkynningu frá framboðinu. Listi Vinstrisins Við erum Vinstrið: Sanna Magdalena Mörtudóttir, mannfræðingur og borgarfulltrúi Líf Magneudóttir, grunnskólakennari og borgarfulltrúi Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir, viðurkenndur bókari og varaborgarfulltrúi Arna Magnea Danks, leikkona, áhættuleikstjóri og kennari Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum Laufey Líndal Ólafsdóttir, tæknistjóri á Samstöðinni, baráttukona og amma Riitta Anne Maarit Kaipainen, rekstrarstjóri Tinna Jóhannsdóttir, skrifstofukona og athafnastýra Steinar Harðarson, athafnastjóri og vinnuverndarráðgjafi Viðar Gunnarsson, fyrrum teymisstjóri Vettvangs- og ráðgjafateymis Reykjavíkur Bergrún Andradóttir, skrifstofustjóri Samtakanna ´78 og stjórnarkona í Kvenréttindafélagi Íslands María Hjálmtýsdóttir, kennari og aktívisti Illugi Gunnarsson, formaður Ungra vinstri grænna Halldór Auðar Svansson, tölvunarfræðingur Brynhildur Björnsdóttir, söngkona og háskólanemi Signý Sigurðardóttir, verkakona á leikskóla og litakona Sveinn Rúnar Hauksson, læknir Armando Garcia Teixeira, doktorsnemi og aðgerðasinni Nína Aradóttir, jarðfræðingur Þórdís Nadia Semichat, sviðshöfundur og danskennari Kristinn Schram, dósent við Háskóla Íslands Sigurður Andrés Sigurðarson, ökuleiðsögumaður Ragnhildur Björt Björnsdóttir, sagnfræðinemi Davíð Sól Páls, umsjónarkennari Ari Orrason, frístundaráðgjafi Ragnheiður Guðmundsdóttir, stjórnmálafræðingur Birna Björg Guðmundsdóttir, tollmiðlari og ritari Trans vina Björn Rúnar Guðmundsson, sagnfræðingur Sæmundur Helgason, grunnskólakennari og UT verkefnastjóri Sóley Lóa Smáradóttir, nemi Auður Alfífa Ketilsdóttir, smíðaleiðbeinandi Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Háskóla Íslands Ingileif Jónsdóttir, prófessor emeríta í ónæmisfræðum Silva Á. Skjalddal Eggertsdóttir, leiðbeinandi í leikskóla Viktor Árnason, líffræðingur Alexandre Amaral Da Silva, persónulegur aðstoðarmaður og aktívisti Sigrún Jóhannsdóttir, líffræðingur Rakel Hildardóttir, starfskona í Konukoti, neyðarskýli fyrir konur Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar Jón Helgi Þórarinsson, tölvuleikjahönnuður René Biasone, svæðasérfræðingur hjá Náttúruverndarstofnun Úlfhildur Melkorka Magnadóttir, hjúkrunarfræðinemi og frístundaleiðbeinandi Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur Sigrún Jónsdóttir, sjúkraliði á eftirlaunum Guðrún Ágústsdóttir, hópstjóri hjá Sorgarmiðstöð, fyrrverandi forseti borgarstjórnar