Bandaríkjaher segir að geta Írana til að gera árásir á Hormússund hafi verið skert verulega. Þó að Bandaríkjamönnum hafi tekist að veikja herinn taki það nokkurn tíma að ráða niðurlögum hans, að mati hernaðarráðgjafa. Árásir á rúmlega 8.000 hernaðarleg skotmörk Bandaríkjaher réðst á neðanjarðarvopnabúr í vikunni og eyðilagði þúsundir stýriflauga, dróna og annarra vopna. Auk þess var ráðist á innviði tengda leyniþjónustu landsins og eldflaugaratsjár sem fylgdust með skipahreyfingum á sundinu. Herinn hefur gert árásir á rúmlega átta þúsund skotmörk og segist ráða lofthelgi landsins. „Íran hefur glatað umtalsverðri hernaðargetu þessar þrjár vikur. Við tökum þúsundir flugskeyta og árásardróna úr umferð, sem og allan sjóher Írans, sem notaður er til að raska sjóflutningum milli landa,“ segir Brad Cooper, yfirmaður miðstjórnar Bandaríkjahers. Sjóher Írans sigli ekki, flugherinn fljúgi ekki og Íran hafi misst getuna til að skjóta flugskeytum af sömu ákefð og í upphafi átakanna. „Hingað til höfum við hæft fleiri en átta þúsund hernaðarleg skotmörk, þar af 130 írönsk skip, sem er umfangsmesta útrýming sjóhers á þriggja vikna tímabili síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Ég met stöðuna áfram þannig að stríðsgeta Írans minnki stöðugt á sama tíma og við herðum árásir okkar.“ Bandaríkjaher hefur veikt getu Írana til að gera árásir á Hormússundi undanfarna daga. Hópur rúmlega tuttugu ríkja segist vera tilbúinn að tryggja öruggar siglingar um sundið. Írönsku mannréttindasamtökin Human Rights Activists News Agency, HRANA, segja að 640 loftárásir hið minnsta hafi verið gerðar á landið í gær. Stríðið hafi kostað að minnsta kosti 1398 manns lífið á undanförnum þremur vikum, þar af 210 börn. Á eftir að taka talsverðan tíma að útrýma íranska hernum Hópur meira en 20 ríkja , sem inniheldur meðal annars Sameinuðu arabísku furstadæmin, Bretland, Frakkland og Þýskaland, hefur gefið út sameiginlega yfirlýsingu þar sem ríkin fordæma árásir Írans á flutningaskip og borgaralega innviði á Persaflóa. Þau saka Íran um að hafa í raun og veru lokað Hormússundi og krefjast þess að öllum árásum verði hætt strax, þó að íranski byltingarvörðurinn segist ekki hafa gert það formlega. „Við erum reiðbúin til að leggja okkar af mörkum til viðeigandi aðgerða til að tryggja öruggar siglingar um sundið.“ Steve Prest, fyrrverandi yfirmaður breska flotans og hernaðarráðgjafi, segir að það að senda herskip til að veita flutningaskipum fylgd um sundið sé ekki útilokað, heldur vel gerlegt. „En áður en það er gert verður að skapa öryggissvigrúm sem dregur úr áhættunni þannig að hún verði viðunandi.“ Skerða þurfi vilja Írana en líka hernaðarlega getu til að ógna þessum skipum. „Bandaríkjamenn hafa án efa dregið verulega úr hermætti Írans.“ Þó að Bandaríkjamönnum hafi tekist að veikja íranska herinn, þá taki það nokkurn tíma að ráða niðurlögum hans. „Ég tel þó óhætt að segja að þeir hafi ekki útrýmt honum og það á eftir að taka talsverðan tíma.“