Ármann fellur úr úrvalsdeildinni

Nýliðar Ármanns í Bónusdeild kvenna í körfubolta verða í næstefstu deild í haust en liðið endar í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar. Örlög liðsins réðust reyndar áður en það átti sjálft leik í kvöld því Hamar/Þór, sem var í fallbaráttunni með Ármenningum, vann Keflavík 88-85 . Hamar/Þór endar í næstneðsta sæti deildarinnar og fer í umspil ásamt liðunum í 2.-4. sæti næstefstu deildar um áframhaldandi sæti í Bónusdeildinni. Ármann mætti svo Tindastóli á Sauðarkróki og tapaði frekar stórt í þýðingalitlum leik, 95-69 . Þetta var jafnframt síðasti leikur Ármanns í vetur en hin liðin í neðri hlutanum eiga eina umferð eftir. Keflavík, Stjarnan og Tindastóll eru komin í úrslitakeppnina. Staðan í neðri hlutanum .