Þýskt herskip við Íslandsstrendur

Þýskt herskip, sem nú er statt utan við Dýrafjörð á Vestfjörðum, er ekki við Ísland í tengslum við erlenda snekkju sem meinað var um hafnarkomu á Akureyri fyrr í dag. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta. Mbl.is greindi frá því í kvöld að þýskt herskip væri á siglingu við landið. Samkvæmt Marine Traffic lagði skipið, NATO WARSHIP 219, af stað frá Þýskalandi í gær. Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir Ásgeir Erlendsson að algengt sé að skip erlendra ríkja sigli á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Skipið sé hér með leyfi íslenskra stjórnvalda og tengist fyrrnefndri snekkju ekki með neinum hætti. Herskipið sem um ræðir er statt undan Dýrafirði.marinetraffic.com