Annar dagur HM í frjálsíþróttum innanhúss var í dag. Simon Ehammer frá Sviss átti sviðsljósið því hann sló heimsmetið í sjöþraut þegar hann náði í 6670 stig. Besta greinin hans var 60 metra hlaup þar sem hann fékk 1106 stig og þar að auki fékk hann yfir þúsund stig í langstökki og stangastökki. Gamla metið, 6645 stig, átti Bandaríkjamaðurinn Ashton Eaton og hafði það staðið síðan 2012. Það var einnig keppt í stangastökki karla og líkt og undanfarin þrjú heimsmeistaramót innanhúss, og líkt og á flestum stórum frjálsíþróttamótum, bar Svíinn Mondo Duplantis sigur úr býtum. Hann stökk 6,25 metra sem er mótsmet. Aldrei þessu vant reyndi hann ekki við heimsmetið, sem hann á auðvitað sjálfur, en að eigin sögn var keppnin við Grikkjann Emmanouil Karalis hörð í dag og sökum stutts hvíldartíma á milli stökkva fannst honum hann ekki eiga nóg inni til þess. Christopher Morales Williams vann 400 metra hlaup karla á nýju mótsmeti, 44,76 sekúndum. Hann tók fram úr Bandaríkjamanninum Khaleb McRae á lokakaflanum en sá fékk silfur. Öll úrslit dagsins má finna á heimasíðu alþjóða frjálsíþróttasambandsins .