Grunur um íkveikju í Fjarðabyggð

Slökkvilið Fjarðabyggðar barðist við tvo elda í dag, einn í Breiðdal og annan í Berufirði. Í tilkynningu frá slökkviliðinu segir að grunað sé að um íkveikju hafi verið að ræða. Fólk er beðið um að fara varlega með eld þar sem gróður á svæðinu er mjög þurr. Í tilkynningunni segir að útkall vegna gróðurelds við Krossadalsá í Breiðdal hafi borist klukkan 13:31. „Vel gekk að slökkva eldinn en þegar slökkvistarfi var við það að ljúka um kl. 14:15, barst tilkynning um annan gróðureld aðeins sunnar, ofan við bæinn Krossgerði í Berufirði og fóru bílar af tveimur stöðvum frá Slökkviliði Fjarðabyggðar auk þess sem Slökkvilið Múlaþings sendi bíl frá Djúpavogi,“ segir þar. Bruninn hafi náð yfir um tveggja hektara svæði. Vindátt var þó nokkuð hagstæð sem auðveldaði slökkviliði vinnu við að verja hús á svæðinu. Slökkvistörfum var síðan lokið um 16:00.