Séra Jakob í viðtali hjá stórum kaþólskum fjölmiðli

EWTN, einn stærsti kaþólski fjölmiðill heims, fjallaði í vikunni um mál séra Jakobs Rollands, kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Jakob vakti athygli fyrr í mánuðinum eftir að hann sagðist í útvarpsviðtali styðja það að samkynhneigðir leiti úrræða til að breyta kynhneigð sinni, nokkuð sem kallast í daglegu tali hérlendis bælingarmeðferð. „Séra Jakob Rolland gæti verið dæmdur til fangelsisvistar á Íslandi fyrir að verja kaþólska stefnu um samkynhneigð og fyrir að veita einstaklingum með slíka hneigð andlegan stuðning innan kirkjunnar,“ segir í frétt EWTN . Fengið jákvæð viðbrögð við ummælunum Fjölmiðillinn EWTN, eða Eternal World Television Network, var stofnaður árið 1981. Hann rekur til að mynda bæði stærstu kaþólsku sjónvarpsstöðina og stærstu kaþólsku vefsíðuna í Bandaríkjunum. Þá hefur miðillinn starfsstöðvar í fjölda landa. Frétt EWTN um séra Jakob Rolland byggir einmitt á viðtali hans við ACI-Prensa, sem er systurmiðill EWTN sem er á spænsku. Í fréttinni er haft eftir Jakobi að markmið hans sé að vekja almenning til umhugsunar um það sem hann kallar „LGBT einræði“ sem margir óttist að gagnrýna. Þar segir að á bilinu 8-10% íslensku þjóðarinnar kenni sig við kaþólska trú. Vert er að taka fram að samkvæmt Hagstofu Íslands eru 4% þjóðarinnar skráðir í kaþólsku kirkjuna. „Mest af viðbrögðunum við ummælum mínum hafa verið jákvæð,“ er haft eftir séra Jakobi Rolland í fréttinni. „Fólk hefur meira að segja skrifað til mín vegna þess að það vill færast nær kirkjunni.“ Þá er haft eftir séra Jakobi að hann óttist ekki mögulega fangelsisvist vegna ummæla sinna. Hann verði að berjast fyrir drottni vorum. „Ef við segjum ekki eitthvað þá gerir enginn það. Það eru allir hræddir við það jafnvel þó þeir séu ósammála lögunum og þeirri hugmyndafræði sem ríkir hér á Íslandi. Og vegna þess að landið er svo einangrað þá er restin af heimsbyggðinni ekkert meðvituð um það sem er að gerast,“ segir séra Jakob. Fólk þori ekki að tjá sig Haft er eftir séra Jakob að miður sé að kaþólska kirkjan fái ekki lengur að koma skilaboðum sínum á framfæri í grunnskólum. Hins vegar sé verið að fræða börn um hinsegin hugmyndafræði allt frá 5 ára aldri. „Ég tel okkur búa yfir þeirri skyldu að verða að segja sannleikann og verja börn. Það er mikil hætta á Íslandi: fólkið sefur í skjóli einræðis. Það þorir ekki að tjá sig,“ segir séra Jakob. Þrátt fyrir að hugmyndafræðin hafi slæm áhrif á ungmenni þjóðarinnar kveðst hann bjartsýnn, enda merki um að ungt fólk sé að sækja kirkjuna í auknum mæli. „Ég vil færa kirkjuna og boðskap Krists til þeirra, svo þau geti færst nær drottni. Það er ekki auðvelt því þetta er mjög trúlaust land. En ég sé að það er að skila árangri,“ segir séra Jakob Rolland í viðtalinu.