Robert Mueller, fyrrverandi forstjóri Alríkislögreglu Bandaríkjanna, er látinn 81 árs að aldri. Mueller byggði upp hryðjuverkadeild stofnunarinnar eftir árásina á Bandaríkin í september 2001 og stjórnaði rannsókn dómsmálaráðuneytisins um meint tengsl Rússa við framboð Donalds Trump í forsetakosningunum 2016. Mueller var kallaður til starfans eftir að Trump rak arftaka hans, James Comey, úr starfi forstjóra FBI árið 2017. Trump kallaði rannsókn Muellers nornaveiðar og fagnaði andláti hans í færslu á Truth Social með þeim orðum að hann gæti ekki lengur sært saklaust fólk. Þingnefnd yfirheyrði Mueller sumarið 2019 í beinni útsendingu, sem vakti mikla athygli, þar sem hann sagði umfangsmikla skýrslu sína ekki hreinsa Trump af áburðinum um samvinnu við Rússa. Rannsóknin tók 22 mánuði og leiddi af sér ákærur á hendur 34 einstaklingum, þar af sex samherjum Trumps, og þremur fyrirtækjum. Fyrrum forsetarnir George W. Bush og Barack Obama vottuðu minningu Muellers virðingu og sögðu hann hafa breytt ásýnd Alríkislögreglunnar á tólf ára skipunartíma sínum og verið einn virtasti embættismaður samtímans. Mueller, sem andaðist á föstudaginn, fæddist 7. ágúst 1944 og starfaði lengi sem saksóknari áður en hann gekk til þjónustu við alríkið. Þekktustu mál hans voru gegn glæpaforingjanum John Gotti og Manuel Noriega , fyrrverandi einræðisherra Panama.