Trump hótar árásum á raforkuver Írans verði Hormússund ekki opnað

Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar gereyðingu allra raforkuvera Írans opni byltingarvörðurinn ekki fyrir alla skipaumferð um Hormússund . Hann gaf Írönum tveggja sólarhringa frest áður en Bandaríkjaher léti til skarar skríða gegn orkuverunum, því stærsta fyrst, eins og hann orðaði það í færslu á Truth Social. Íransher sagðist á móti leggja til atlögu að orkuinnviðum og afsöltunarstöðvum í eigu Bandaríkjanna og nágrannaríkjanna. Bandaríkjaher sagðist í gær hafa laskað byrgi Íranshers sem beindi vopnum í átt að sundinu. Talið er að yfirlýsingu forsetans sé ætlað að róa orkumarkaðinn og draga úr efasemdum samherja Bandaríkjanna. Um tveir tugir þeirra hafa heitið liðsinni við að tryggja siglingar um Hormússund. Sundið hefur verið meira og minna lokað frá því Ísrael og Bandaríkin hófu stríðið gegn Íran 28. febrúar. Um það bil fimmti hluti flutninga með hráolíu og fljótandi gas fer um sundið á friðartímum og lokunin hefur orðið til þess að þau ríki sem reiða sig siglingaleiðina reyna að finna aðrar flutningalausnir og gengið á neyðarbirgðir olíu og gass. Eldsneytisverð hefur hækkað verulega um veröld alla og verðbólguuggur vex eftir því sem stríðið dregst á langinn. Ísraelsher hóf í nótt nýjar og umfangsmiklar árásir á írönsku höfuðborgina Teheran nokkrum klukkustundum eftir að á annað hundrað særðist í eldflaugaárásum Íranshers á tvo bæi, Arad og Dimona, í Ísrael. Talið er að einu kjarnorkuvopnastöð Mið-Austurlanda sé að finna í þeim síðarnefnda, þótt Ísraelsstjórn hafi aldrei viðurkennt að eiga slík vopn. Talsvert eignatjón varð í árásunum samkvæmt upplýsingum ísraelskra yfirvalda. Forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú hét því að halda uppteknum hætti við árásir á Írani og samherja þeirra eftir það sem hann kallaði „afar þungbært kvöld“. Breskur kjarnorkukafbátur, HMS Anson, er kominn til Arabíuflóa samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla. Kafbáturinn er sagður búinn langdrægum, bandarískum Tomahawk-eldflaugum sem auðvelda Bretum að gera árásir um langan veg stigmagnist styrjöldin í Mið-Austurlöndum.