Þýsk freigáta leitaði vars undan veðri í Vopnafirði

Þýska freigátan Brandenborg á siglingu.Bundeswehr/Sascha Jonack Þýskt herskip leitaði vars undan veðri í Vopnafirði fyrir helgina. Austurfrétt greinir frá því að það sé freigátan Brandenborg og samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar hafi hún verið við landið með leyfi stjórnvalda. Gæslan gefi ekki frekari upplýsingar um ferðir hennar. Freigátan sé samkvæmt skráningu á skipasíðum á leiðinni til Grikklands og skráð í þjónustu Atlantshafsbandalagsins. Brandenburg var stóran hluta seinasta árs til taks fyrir botni Miðjarðarhafs. Haft er eftir þýskum fjölmiðlum að þýsk skip hafi undanfarið tekið þátt í aðgerðum NATO í Norðursjó og á Eystrasalti. Ferðir fleiri erlendra skipa hafa vakið athygli síðustu daga.