Aðsend / Aðsend/Listi Samfélagsins í Norðurþingi Framboðslisti M – Lista Samfélagsins í Norðurþingi var samþykktur 15. mars og er fullskipaður. Rúnar Traustason , rekstrarstjóri Íslandspósts á Húsavík og slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, er í efsta sæti. Listinn er skipaður óháðum, félagshyggjufólki og Miðflokksfólki í Norðurþingi að því er segir í tilkynningu. Markmiðið sé að sameina öflugt fólk með mikla reynslu úr ólíkum áttum til að vinna að hagsmunum íbúa sveitarfélagsins.