Skaðabótamál gegn Gerry Adams fellt niður á elleftu stundu

Einkamál hefur á elleftu stundu verið fellt niður gegn Gerry Adams, fyrrverandi leiðtoga Sinn Féin, flokks lýðveldissinna á Norður-Írlandi. Málshefjendurnir þrír, John Clark, Jonathan Ganesh og Barry Laycock, segjast hafa ákveðið að draga málið til baka þegar á daginn kom að þeir gætu þurft að greiða málskostnað Adams, allt að hálfri milljón sterlingspunda. Það hefði getað orðið raunin, hver sem málalok yrðu, féllist dómarinn á að þeir hefðu misbeitt málssóknarrétti sínum, líkt og lögmaður Adams hefur haldið fram. Það hefði einnig fellt úr gildi málskostnaðarvernd mannanna sem úrskurðuð var fyrir fjórum árum. Adams bauð mönnunum loks að hætta við málið og að hver greiddi eigin kostnað, sem þeir féllust mjög tregir á. Greiðsla alls kostnaðarins hefði rústað lífi þeirra. Hópfjármögnun hafði tryggt málshefjendum 120 þúsund pund og Adams sagði vini sína hafa boðist til að aðstoða sig við málskostnaðinn. Því gerði hann engar kröfur á mennina þrjá. Mennirnir segjast niðurbrotnir Þremenningarnir segjast vera niðurbrotnir yfir niðurstöðunni og að mjög ósanngjarnt sé að tæknilegt atriði komi í veg fyrir að Adams standi reikningsskil gerða sinna. Mennirnir særðust allir í árásum Írska lýðveldishersins og sökuðu Adams um að vera einn höfuðpaura hryðjuverka IRA þá þrjá áratugi sem blóðug átök geisuðu á Norður-Írlandi. Krafa þeirra var að Adams greiddi þeim eitt pund í skaðabætur, sem réttlætingu fyrir brot hans. Málaferlin hófust fyrir hálfum mánuði. Vitni úr röðum fyrrverandi liðsmanna IRA, breska hersins og norður-írsku lögreglunnar sögðu öll að Adams hefði verið leiðandi afl innan lýðveldishersins um hálfrar aldar skeið. Það sögðu þremenningarnir til marks um að Adams væri ekki sá „friðelskandi engill“ sem hann segðist vera. Adams sjálfur þvertók fyrir að hafa nokkru stjórnað, líkt og hann hefur ætíð gert, og sagði málið jaðra við að vera leikaraskapur einn.