Viðbótarkostnaður vegna ferðalaga fólks með leiðsöguhunda fellur á ríkissjóð en ekki notendur sjálfa, nái reglugerð félags- og húsnæðismálaráðherra fram að ganga. Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra.RÚV / Ragnar Visage Hún hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda og nær til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur lögum samkvæmt úthlutað sem hjálpartæki. Viðbótarkostnaður fellur til vegna skilyrða í reglum sem gera ráð fyrir einangrun hunda og katta við innflutning. Reglugerðinni er ætlað að tryggja jafnræði notenda leiðsöguhunda og bæta aðgengi þeirra að ferðalögum, að sögn Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Frestur til að senda inn umsögn er til 2. apríl.