Grunur um brot gegn barni á leikskóla í Garðabæ

Barnavernd Garðabæjar hefur til rannsóknar grun um að brotið hafi verið gegn barni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Málið kom upp í liðinni viku og foreldrar voru upplýstir um það í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kom málið upp á fimmtudaginn í síðustu viku. Foreldrar barna á leikskólanum voru upplýstir um málið á fundi í morgun. Guðný Hrönn Antonsdóttir, samskiptastjóri hjá Garðabæ, staðfestir við fréttastofu að grunur um brot gegn barnaverndarlögum sé til rannsóknar hjá barnavernd. Hún segist ekki geta gefið upp hvers eðlis brotið er, né hvort það var af hendi starfsmanns. Þá gefur hún ekki upp hvort málið hafi verið tilkynnt til lögreglu. Krakkakot er á Álftanesi. Þar eru börn á aldrinum eins til fimm ára. Á leikskólanum eru um það bil hundrað börn og 28 starfsmenn. Boðað var til tveggja funda með foreldrum í morgun og stóðu fundir upp undir hádegi. Fleiri sambærileg mál hafa komið upp á leikskólum að undanförnu. Á miðvikudag í síðustu viku var greint frá því í fréttum RÚV að starfsmaður leikskóla á Akranesi sæti rannsókn hjá lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Þá hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu til rannsóknar mál starfsmanns leikskólans Brákaborgar í Reykjavík, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn barni. Starfsmaður Múlaborgar hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni í leikskólanum. Hann var grunaður um brot gegn minnst tíu börnum. Niðurfelling á rannsókn eða ákæru í málum sex barna var kærð til ríkissaksóknara, sem hefur fellt þrjár ákvarðanir úr gildi og gert lögreglu og héraðssaksóknara að rannsaka málin betur.