Hundur fékk tafar­lausa þjónustu en krabbameinssjúk kona beið mánuðum saman

„Þetta snýst ekki um einstaklinga heldur kerfið. Það er löngu sprungið. Hraðinn og álagið er orðið svo mikið að allir fylgja einhverju verklagi þar sem skortur er á almennri hugsun og umhyggju. Mannlega þættinum er ýmist gleymt eða einfaldlega ekki tími fyrir hann,“ segir Berglind Sigurðardóttir. Systir hennar, Guðlaug Sigurðardóttir, lést þann 9. febrúar síðastliðinn eftir langvarandi veikindi sem hófust árið 2017 með einkennum sem voru ítrekað talin tengjast mígreni. Það tók fimm ár að fá ítarlega rannsókn sem að lokum leiddi í ljós æxli í heila.