„Ég hefði tekið hann út af með handafli,“ sagði John Terry, fyrrverandi fyrirliði Chelsea, í setti Sky Sports eftir tap Chelsea fyrir Manchester City í úrslitum deildabikarsins árið 2019. Þar er rætt um Kepa Arrizabalaga, þáverandi markvörð Chelsea, sem var skúrkurinn í þeim leik . Hann mætir City aftur í dag í úrslitaleik keppninnar.