Júlía Kristín sló Íslandsmetið en komst ekki áfram

Júlía Kristín Jóhannesdóttir hljóp virkilega vel í undanrásum 60 metra grindahlaupsins á HM í frjálsíþróttum í dag, hún bætti eigið Íslandsmet um 7 hundraðshluta og kom í mark á 8,11 sekúndum. Þetta er fyrsta stórmót Júlíu Kristínar sem hafði þríbætt Íslandsmetið í greininni á árinu. Það stóð í 8,18 sekúndum en þann tíma setti hún í Alabama í Bandaríkjunum 28. febrúar. Júlía Kristín hljóp í riðli 3 og varð sjöunda af átta keppendum. Þrír hröðustu í hverjum riðli fara beint áfram og svo þeir sex hlauparar utan þeirra sem eiga bestan tíma sömuleiðis. Júlía er því úr leik á þessu heimsmeistaramóti en dýrmæt reynsla, og frábær bæting, í bankann.