Gerplukonur urðu í dag bikarmeistarar í hópfimleikum eftir spennandi keppni við Stjörnuna og Selfoss. Stjörnumenn urðu bikarmeistarar karla í hópfimleikum en voru eina liðið sem þar var skráð til keppni.