Laga­breytingin marki enda­lok íbúða­hótela í Reykja­vík

Rekstrarstjóri fyrirtækis sem þjónustar íbúðahótel og íbúðir í heimagistingu telur að rekstur margra íbúðahótela sé í hættu með tilkomu lagabreytingar sem takmarkar skammtímaleigu. Samtök leigjenda fagna breytingunum en rekstrarstjórinn telur of mikið gert úr þeim áhrifum sem þær geti haft á íbúðamarkað.