„Læknar í dreifbýli þurfa að geta staðið sjálfstæðir, oft í mjög erfiðum aðstæðum“

Aðstæður geta verið krefjandi fyrir heilbrigðisstarfsfólk á landsbyggðinni þegar veður eru slæm og færð spillist. Þá getur liðið þó nokkur tími þar til hægt er að flytja sjúklinga á sjúkrahús. Um helgina komu 21 læknir saman og æfðu neyðarinngrip fyrir lækna í dreifbýli undir handleiðslu bráðalækna frá Landspítalanum og sjúkrahúsinu á Akureyri. „Hugmyndin kom í raun og veru í kjölfarið á því að það varð slys á okkar starfssvæði og á vettvang komu læknar frá báðum starfsstöðum hérna í nágrenninu. Út frá því hugsaði ég að það væri mjög gott að við gætum kannski bara tekið svona áhersluæfingu og styrkt mannskapinn enn frekar og svona eflt þau félagslega líka í leiðinni,“ segir Guðrún Dóra Clarke, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Leiðin á næsta þjónustustig er ekki alltaf greið þegar veður eru slæm. „Þyrlur, sjúkraflug og sjúkrahús eru oft í alveg ofboðslega mikilli fjarlægð þegar veður er óhagstætt eða aðstæður þannig að læknar þurfa að geta staðið sjálfstæðir, oft í mjög krefjandi og erfiðum aðstæðum.“ Guðrún segir þjálfunin hafa snúið að hópslysum og þegar fólk fær áverka á brjóstkassa og höfuð eða þegar öndunarvegur laskast. Og veðrið um helgina sýndi hvernig færð getur spillst á ögurstundu. „Þetta er bara mjög gott dæmi, þessi helgi, bæði var ekki auðvelt fyrir alla þátttakendur að koma og nú erum við svona að horfa til veðurs og fylgjast með snjóflóðaspám upp á að komast svo aftur heim,“ segir Guðrún að lokum.