Kvenfélagskonur um allt land láta sitt ekki eftir liggja þegar kemur að gefa peninga til líknar-, mennta-, menningar- og umhverfismála en konurnar gáfu um 85 milljónir króna á árinu 2024. „Konurnar eru hörkuduglegar og vinna þrekvirki þegar það er verið að fara í söfnun,“ segir forseti Kvenfélagasambands Íslands. 73. formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands var haldinn á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi í lok febrúar en fundinn sóttu formenn og fulltrúar þeirra kvenfélaga sem eiga aðild að Kvenfélagasambandi Íslands. Fram kom að landsþing sambandsins verður haldið í Vík í Mýrdal í október 2027 en búist er við um 250 konum á þingið. Þá hefur kvenfélagasambandið tekið að sér að sjá um og bjóða á Evrópuþing samtaka dreifbýliskvenna vorið 2028 en reiknað er með rúmlega 100 konum á það þing. Eins og allir vita eru kvenfélagskonur mjög duglegar að styrkja hin ýmsu málefni eins og Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti Kvenfélagasambands Íslands, þekkir manna best. „Já, kvenfélagskonur í Kvenfélagasambandi Íslands eru rosalega duglegar að vinna alls konar í líknar- og menningarmálum og við höfum gefið það út á þriggja ára fresti hvað félögin innan okkar raða hafa gefið til samfélagsins og við erum með töluna núna bara fyrir 2024, þá sjáum við það í skýrslum frá okkar félögum að félögin hafa verið að gefa um 85 milljónir,” segir Dagmar Elín og bætir við. „Það er nefnilega svakalega mikið og við eigum eftir að fá töluna, það er verið að safna fyrir 2025 og þessar tölur eru allar unnar í sjálfboðavinnu. Það er unnið að öllu þessu starfi í sjálfboðavinnu og það eru náttúrlega bara konur í kvenfélögum, þær eru svo hörkuduglegar og vinna þrekvirki þegar það er verið að fara í söfnun og það er það sem gefur þessu starfi svo mikið gildi að geta hjálpað.” Og þið ætlið að halda áfram að safna og safna og láta gott af ykkur leiða eða hvað? „Já, það er okkar markmið að láta gott af okkur leiða og njóta þess líka að vera saman og styrkja kvenfélögin í landinu og við finnum það núna að það er meðbyr með kvenfélögunum í landinu og það er bara vegna þess að þetta hefur vakið athygli hvað við höfum verið að gera,” segir Dagmar Elín. Í dag eru rúmlega 150 kvenfélög í landinu og kvenfélagskonurnar í þeim eru um fimm þúsund.