Heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss er nú lokið. Það var haldið í Toruń í Póllandi í ár. Cooper Lutkenhaus frá Bandaríkjunum stal senunni í kvöld þegar hann gerði sér lítið fyrir og vann 800 metra hlaup karla. Lutkenhaus varð 17 ára í desember og er yngstur til að vinna verðlaun á innanhúss heimsmeistaramóti og því yngsti heimsmeistari sögunnar. Þrátt fyrir ungan aldur hljóp hann skynsamlega, hélt sér nálægt Belganum Eliott Crestan til að byrja með og tók svo fram úr honum þegar um 300 metrar voru eftir. Andstæðingar hans, töluvert reyndari, reyndu sem þeir gátu að ná hlauparanum unga en Lutkenhaus hélt út og vann á tímanum 1:44,24, 14 sekúndubrotum á undan Crestan sem fékk silfur. Spánverjinn Mohamed Attaoui fékk brons. Breskar konur unnu þrefalt Kvöldið var gott fyrir Breta. Molly Caudery vann stangarstökk kvenna nokkuð óvænt með stökki upp á 4,85 metra, Georgia Hunter Bell náði besta tíma ársins í 1500 metra hlaupi kvenna og tryggði sér gullið og Keely Hodgkinson sló mótsmetið í 800 metra hlaupi kvenna í úrslitahlaupinu. Bandaríska sveitin í 4x400 metra hlaupi karla bætti einnig mótsmetið þegar hún kom í mark á 3:01,52. Bandaríkin unnu einnig sama hlaup í kvennaflokki á tímanum 3:25,81. Devynne Charlton frá Bahamaeyjum jafnaði eigið heimsmet þegar hún vann 60 metra grindahlaup kvenna, þriðja heimsmeistaramótið í röð. Hún hljóp á 7,65 sekúndum. Dramatíkin í langstökki karla var mikil, Ítalinn Mattia Furlani hélt að hann væri að tryggja sér gullið með stökki upp á 8,39 metra en þá ákvað Portúgalinn Gerson Baldé að bæta sitt besta stökk um 27 sentimetra í sinni síðustu tilraun. Hann flaug 8,46 metra og vann um leið sín fyrstu verðlaun á stórmóti. Portúgalar kunnu greinilega vel við stökkgryfjuna í Toruń því landi Baldé, Agate De Sousa, vann langstökk kvenna í morgun þegar hún stökk 6,92 metra. Öll úrslit dagsins, sem og alls mótsins, má finna á heimasíðu alþjóða frjálsíþróttasambandsins .