Mikil fjölgun á slysum í sendibílum í útleigu

Fjöldi sendibíla sem eru í útleigu hefur meira en þrjátíufaldast á tveimur áratugum. Flestum þeirra hefur verið breytt í húsbíla. Dæmi eru um að slíkar breytingar hafi valdið meiðslum á farþegum. Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa á banaslysi í Berufirði í fyrra, þegar fólksbifreið og lítil sendibifreið rákust saman, með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbílsins lést, kom fram að búið var að fjarlægja gler úr skilrúmi milli farþegarýmis og farangursrýmis sendibílsins og því var opið þar á milli, en eldunar- og svefnaðstaða hafði verið útbúin í farangursrýminu. Innréttingar losnuðu við áreksturinn og gengu að hluta inn í farþegarýmið í gegnum opið á skilrúminu, en ökumaður og farþegi sendibílsins slösuðust alvarlega. Enginn loftpúði var hjá farþegasætinu. Ljóst er að þær breytingar sem gerðar voru á bifreiðinni juku alvarleika meiðsla þeirra sem voru í bílnum. Samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu er ekki haldið sérstaklega utan um tölfræði slysa í sendibílum sem búið er að breyta í húsbíla. Aftur á móti sýnir tölfræði almennt mikla fjölgun umferðaróhappa og -slysa í sendibílum, sem eru bílaleigubílar, úr sjö árið 2004 í 157 í fyrra. Ef við skoðum bara þau atvik þar sem voru slys á fólki sjáum við að á tímabilinu 2004 til 2014 voru þau 18, en frá 2015 til 2025 voru þau 80, eða ríflega fjórfalt fleiri. Hins vegar virðist þetta frekar vera merki um mikla aukningu á slíkum bílum í umferð, því ef við skoðum slys með meiðslum á hverja þúsund sendibíla í útleigu sjáum við að hlutfallslega voru þau fleiri fyrir 2010, til dæmis 25 á hverja þúsund árið 2007, en 7 á hverja þúsund í fyrra. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að slysin eru í raun mun fleiri nú en áður. Fjöldi sendibíla í útleigu hefur margfaldast á undanförnum fimmtán árum, en flestum þeirra hefur verið breytt í nokkurs konar húsbíla. Slys á fólki í sendibílum voru fjórum sinnum fleiri á síðustu tíu árum en á áratugnum þar á undan.