Útlit er fyrir spennandi þingkosningar í Danmörku miðað við könnun sem danska ríkisútvarpið birti í dag. Kosningarnar eru á þriðjudag en í kvöld fóru fram lokakappræður frambjóðenda. Stjórnmálin í Danmörku hafa löngum skipst í tvær blokkir, þá bláu á hægri vængnum og rauðu á vinstri vængnum. Stærsti flokkur þeirrar blokkar sem nær meirihluta á þingi hefur jafnan fengið stjórnarmyndunarumboð. Með tilkomu flokksins Moderaterne, sem Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, stofnaði eftir að hann yfirgaf Venstre, hefur landslagið riðlast. Samkvæmt könnuninni nær vinstri blokkin 83 þingmönnum, sú hægri 80 og Moderaterne 12. Ef niðurstöður skoðanakönnunarinnar raungerðust næðu því hvorug blokkin meirihluta á þingi, 90 þingmönnum, nema með samstarfi við Moderaterne. „Þitt atkvæði getur ráðið úrslitum“ „Það er mikið í húfi. Þessar kosningar snúast um stefnu og samvinnu. Um forystu. Þær fjalla um heiminn og hversdagsleikann. Það er þitt atkvæði sem getur ráðið úrslitum.“ Þetta sagði Mette Frederiksen forsætisráðherra þegar hún ávarpaði hátíð Jafnaðarmanna í Kaupmannahöfn fyrr í dag. Hallgrímur Indriðason, fréttamaður RÚV, er í Danmörku og var viðstaddur þegar Frederikssen flutti ræðu sína í dag. Hann segir forsætisráðherrann hafa vakið hylli viðstaddra sem klöppuðu margsinnis á meðan ávarpinu stóð. „Hún kom býsna víða við, hún gagnrýndi meðal annars Troels Poulsen, leiðtoga Venstre, sem hefur setið með henni í ríkisstjórn fyrir að útiloka ákveðna kosti. Polsen hefur verið mjög áfram um það að mynda borgaralega ríkisstjórn en Fredriksen sagði í sinni ræðu að Jafnaðarmenn væru í því að opna dyrum en ekki loka þeim og að það ætti ekki að fara ekki að fara aftur til tíma blokka pólitíkur,“ sagði Hallgrímur í kvöldfréttum RÚV. Stjórnarmyndun gæti reynst flókin Að sögn Hallgríms lofaði Frederikssen einnig efnahagsaðgerðum ef stríðið í Íran hefði slæm áhrif á efnahag. Þá boðaði hún bann við úðun eiturefna til að koma í veg fyrir mengun drykkjarvatns sem verið hefur stórt kosningamál í Danmörku. Aðspurður segir Hallgrímur marga aðra flokka sem nú eru í kosningabaráttu biðla til Lars Løkke um að mynda ríkisstjórn með sér ef bláa blokkin nái ekki meirihluta. „Það er þó ein undantekning á því, það er Danski þjóðarflokkurinn sem samkvæmt könnunum mun bæta við sig töluverðu fylgi í þessum kosningum. Hann vil ekkert með Moderatana hafa og það er ekki víst að það verði hægt að mynda ríkisstjórn bláu blokkarinnar og Moderaterne nema með stuðningi þjóðarflokksins, þannig að þetta er eitt dæmi um það hvernig staðan er býsna flókin fyrir þessar kosningar.“ Hallgrímur segir fjölda fulltrúa ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkana hafa safnast saman í aðdraganda kappræðnanna í kvöld. Mikil spenna ríki fyrir þingkosningarnar sem fara fram þriðjudaginn 24. mars. Mikil spenna ríkir í aðdraganda þingkosninga í Danmörku á þriðjudag. Lokakappræður fóru fram í kvöld. Mette Frederiksen ávarpaði hátíð Jafnaðarmanna.