Íbúi í Havana, höfuðborg Kúbu, segir borgina ekki þola lengur rafmagnsleysi sem vari í margar klukkustundir. Nær allir íbúar Kúbu voru án rafmagns í gær þegar raforkukerfi landsins hrundi, í annað sinn í þessari viku. Raforkukerfið reiðir sig að miklu leyti á olíu en lítið sem ekkert hefur borist af henni til landsins síðan í upphafi árs vegna herkvíar Bandaríkjastjórnar. „Upp á líf og dauða fyrir mig“ „Rafmagnsleysið er að verða algengara og algengara,“ segir Luis Enrrique Ferrer, sem býr í Havana. „Þetta er upp á líf og dauða fyrir mig. Við þurfum að finna lausn sem fyrst. Havana þolir þetta ekki lengur, eins og skáldið sagði.“ „Ég hef ekki getað borðað morgunverð vegna rafmagnsleysisins,“ segir Isabel Hernández eftirlaunaþegi. Inni hjá henni er alveg dimmt. Þetta er í annað skiptið á innan við viku og það þriðja í þessum mánuði sem rafmagnslaust verður á eyjunni. Rafmagnskerfi landsins er gamalt og þarfnast viðhalds. Það reiðir sig á olíu og tíður skortur á henni gerir kerfið enn veikara fyrir. Dilan Mena býr einnig í Havana og segir allan matinn sem hann átti hafa skemmst. „Í nótt svaf dóttir mín varla dúr því rafmagnsleysið var skelfilegt. Við áttum jógúrt sem skemmdist. Eftir 36 klukkutíma án rafmagns skemmdist allur matur.“ Nær hver einasti íbúi Kúbu var án rafmagns í gær, í annað sinn í þessari viku, þegar raforkukerfi landsins hrundi. Borgin þolir þetta ástand ekki mikið lengur, segir íbúi í Havana. Valdaskipti og herkvínni verður aflétt Landið hefur glímt við þungan efnahagsvanda síðustu ár. Engin olía hefur borist þangað síðan 9. janúar, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti bannaði olíuflutninga frá Venesúela, helstu bandalagsþjóð Kúbu. Það hefur einnig haft það í för með sér að mörg flugfélög hafa látið af ferðum til landsins, sem er þungt högg fyrir ferðaþjónustu, eina helstu tekjulind landsins. Trump hefur ekki farið í grafgötur með löngun sína til stjórnarskipta á Kúbu. Þá verði herkvínni aflétt. Þegar hann ræddi við fjölmiðla í Hvíta húsinu 16. mars sagðist hann telja að hann yrði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu. „Það væri gott. Mikill heiður,“ sagði Trump. „Hvort sem ég frelsa hana eða tek. Ég get gert hvað sem mér sýnist.“ Teresa Martínez eftirlaunaþegi segir ástandið bagalegt „en á endanum verður leyst úr þessu.“ Nær hver einasti íbúi Kúbu var án rafmagns í gær, í annað sinn í þessari viku, þegar raforkukerfi landsins hrundi. Borgin þolir þetta ástand ekki mikið lengur, segir íbúi í Havana.