Robert Golob, frjálslyndur forsætisráðherra Slóveníu, hefur lýst yfir sigri í þingkosningum sem haldnar voru í dag. Opinberar niðurstöður sýna þó að íhaldssamur Lýðræðisflokkur Janez Janša fékk nánast jafnmörg atkvæði. Frelsishreyfing Golobs hafði afgerandi betur í kosningum fyrir fjórum árum. Þegar nánast öll atkvæði hafa verið talin hlaut hreyfingin 28,54 prósent atkvæða og 29 þingsæti og Lýðræðisflokkurinn 28,17 af hundraði og 28 sæti. Fjöldi smáflokka fær það sem eftir stendur af atkvæðum og greinendur segja að þrautin þyngri verði að mynda starfhæfa ríkisstjórn. Golob sagðist ætla að mynda sterka ríkisstjórn, áður en niðurstöður lágu fyrir. Í ræðu frammi fyrir stuðningsfólki sínu sagði Golob að fram undan væru erfiðar stjórnarmyndunarviðræður og að fullveldi Slóveníu væri ekki umsemjanlegt. Erlend öfl fengju ekki að véla um það. Fyrir fram var búist við að mjótt yrði á munum og ásakanir um erlenda íhlutun skóku kosningabaráttuna. Rannsókn er hafin á hvort ísraelska leyniþjónustufyrirtækið Black Cube stóð að baki myndböndum teknum á laun þar sem ýjað var að spillingu innan stjórnar Golobs. Samkynja hjónabönd voru lögleidd í stjórnartíð Golobs og Slóvenía er eitt fárra ríkja Evrópusambandsins sem lýstu stríðinu á Gaza sem þjóðarmorði af hálfu Ísraelsríkis. Janez Janša hét í kosningabaráttunni að endurvekja slóvensk gildi, hefðbundið fjölskyldumynstur og skrúfa fyrir greiðslur úr ríkissjóði til óháðra félagasamtaka.