Olíuverð hækkar áfram í skugga stríðsátakanna

Olíuverð heldur áfram að hækka af ótta við að stríðið í Mið-Austurlöndum dragist á langinn. Skömmu eftir að viðskipti hófust á Asíumarkaði á mánudagsmorgni að staðartíma var verðið á tunnu af Brent-Norðursjávarolíu, til afhendingar í maí, 111 bandaríkjadalir. Tunnuverð á Texas Intermediate hækkaði um 1,8 prósent og fór rétt yfir hundrað dali. Verðið var 67,02 dalir og 72,48 dalir á tunnuna 27. febrúar, daginn áður en Ísrael og Bandaríkin réðust á Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði um helgina Írönum gereyðingu orkuinnviða innan tveggja sólarhringa opnuðu þeir ekki siglingaleiðina um Hormússund og Ísraelsstjórn lýsti yfir áframhaldandi árásum á Íran og Hezbollah í Líbanon. Öll merki eru því um að stríðsátökum linni ekki næstu vikurnar hið minnsta og að siglingar með olíu um Hormússund verði áfram takmarkaðar. Um það bil tuttugu prósent sjóflutninga með gas og olíu fara um sundið á friðartímum. Standi Trump við stóru orðin leggur Bandaríkjaher til atlögu að orkuverum kortér fyrir tólf á miðnætti að íslenskum tíma í kvöld, sé miðað við birtingartíma færslunnar á Truth Social. Íranskir ráðamenn hótuðu á móti árásum á orkuinnviði og afsöltunarstöðvar á vegum Bandaríkjanna og bandamanna þeirra.