Gular viðvaranir taka gildi um og eftir hádegi þegar hvessir og snjóar um stóran hluta landsins. Undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og í Öræfum verða að auki hviður allt að 40 metrar á sekúndu frá því um hádegi og þar til síðdegis. Búast má við að veginum milli Víkur og Hafnar verði lokað og einnig frá Höfn að Djúpavogi gangi veðurspáin eftir, að því er segir á vef Vegagerðarinnar . Nokkrir vegir á Vesturlandi eru á óvissustigi og gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara. Á Hellisheiði og í Þrengslum er spáð blindbyl frá því um hádegi og þar til síðdegis. Svipað verður uppi á teningnum á Kjalarnesi og víða í Borgarfirði. Þá gæti einnig orðið býsna blint á Reykjanesbraut frá því um klukkan eitt og til um fjögur síðdegis. Brautin verður því einnig á óvissustigi fram eftir degi og sömuleiðis vegurinn um Hafnarfjall. Hálka og snjóþekja er á mörgum leiðum og sums staðar þæfingsfærð. Sumir fjallvegir eru enn ófærir. Dynjandisheiði er ófær og vegurinn um Víkurskarð er lokaður. Þungfært er á Fjarðarheiði og þæfingsfærð á Fagradal, ófært um Öxl, Breiðdalsheiði og Vatnsskarð eystra. Vegagerðin hvetur ökumenn til varkárni þar sem hreindýr eru víða frá Almannaskarðsgöngum að Djúpavogi. Allt flug er á áætlun enn sem komið er.