Forseti Líbanons segir árásir Ísraela á innviði forleik innrásar

Joseph Aoun, forseti Líbanons, fordæmdi árásir Ísraelshers á brýr og aðra innviði í landinu sunnanverðu. Slíkt athæfi væri forleikur að innrás. Varnarmálaráðherra Ísraels sagði brýrnar hafa verið eyðilagðar vegna þess að Hezbollah nýtti sér þær. Líbanski forsætisráðherrann Nawaf Salam segir liðsmenn íranska byltingarvarðarins stjórna hernaðaraðgerðum Hezbollah-hreyfingarinnar gegn Ísrael. Hann lét þessi orð falla í viðtali á Al Hadath-sjónvarpsstöðinni og ávítaði Hezbollah harðlega fyrir að draga Líbanon inn í stríðsátökin með því að gera eldflaugaárásir á Ísrael. Ísraelski forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú hét því um helgina að ganga milli bols og höfuðs á byltingarverðinum og klerkastjórninni þegar hann heimsótti bæinn Arad eftir flugskeytaárás frá Íran. Eyal Zamir, æðsti yfirmaður Ísraelshers, segir landherinn undirbúa hertar aðgerðir gegn Hezbollah innan Líbanons, í samræmi við áætlanir. „Við erum rétt að byrja,“ segir í yfirlýsingu Zamirs. Ísraelsher rannsakar hvort liðsmenn hans beri ábyrgð á dauða almenns borgara nærri landamærunum að Líbanon. Eldflaug hæfði bifreið hans og upphaflega var Hezbollah kennt um árásina. Palestínumenn á Vesturbakkanum segja landtökufólk hafa borið eld að húsum og bílum í nokkrum árásum á þorp á Vesturbakkanum. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin brýnir fyrir stríðandi fylkingum að gæta alls öryggis og gera ekki árásir á kjarnorkuinnviði Írans og Ísraels enda gæti slíkt leitt af sér alvarleg kjarnorkuslys.