Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti kveðst vongóður um að Bandaríkjamenn reyni áfram að koma á samkomulagi um stríðslok þótt sjónir þeirra beinist að stríðsátökunum í Mið-Austurlöndum. Brýnt sé að innrásarstríði Rússa linni. Steve Witkoff , aðalsamningamaður Bandaríkjanna, sagði í færslu á X ágætlega hafa miðað í tveggja daga viðræðum við Úkraínumenn í Flórída. Einblínt hefði verið á traustar og varanlegar öryggislausnir fyrir Úkraínu og leiðir til að tryggja neyðaraðstoð fyrir stríðshrjáða íbúana. Hann tíundaði það ekki frekar en eyddi færslu um að samkomulag hefði náðst um mannúðar- og líknaraðstoð. Zelensky kvaðst í daglegu ávarpi sínu afar þakklátur Bandaríkjamönnum öllum fyrir stuðning við frið í Úkraínu. Hann myndi ræða ítarlega við sendinefndina þegar hún sneri aftur og kvaðst vonast til að Bandaríkjastjórn beitti samningalipurð sinni áfram. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lagt hart að Úkraínumönnum að gefa Rússum eftir landsvæði. Hann endurtók ávítur í garð Zelenskys fyrr í mars og sagði hann draga lappirnar meðan Vladimír Pútín Rússlandsforseti væri tilbúinn til samninga. Trump-stjórnin aflétti nýlega hömlum á olíusölu Rússa með það að markmiði að draga úr verðhækkunum vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum.