Leiðinda­veður um land allt, gular við­varanir og óvissu­stig

Alldjúp lægð fer til norðausturs fyrir sunnan land í dag. Henni fylgir vaxandi norðaustan- og austanátt, víða allhvasst eða hvasst og snjókoma seinnipartinn, en stormur eða rok allra syðst og þar fellur úrkoman ýmist sem rigning, slydda eða snjókoma.