Systurnar Elísabet, Matthildur og Helena Einarsdætur spila allar blak saman í HK. Þær urðu bikarmeistarar með liðinu fyrir rúmri viku eftir sigur á KA í úrslitaleiknum . „Þetta er bara stærsta helgin á tímabilinu,“ sagði Matthildur um bikarúrslitahelgina. „Og að fá að gera þetta með Elísabetu og Helenu, þetta er svo skemmtilegt og það er svo gaman að vera inni á vellinum með þeim. Við erum alltaf brosandi og hlæjandi og að skemmta okkur.“ Hér má sjá allt viðtalið við systurnar: Fyrir rúmri viku varð HK bikarmeistari kvenna í blaki. Í liðinu eru þrjár systur sem fögnuðu titlinum saman. Við kíktum í heimsókn til systranna og fengum að kynnast þeim betur. Með blakið í blóðinu „Foreldrar okkar eru bæði í blaki,“ sagði Helena en foreldrar þeirra eru Einar Sigurðsson og Þórey Haraldsdóttir. „Þau voru bæði í HK og í landsliðinu, kynntust í gegnum blakið líka þannig að við höfum bara verið í því síðan við fæddumst.“ „Ég einmitt ætlaði aldrei í blak út af því að ég var bara komin með ógeð af blaki áður en ég fæddist.“ - Helena Einarsdóttir Elísabet segir foreldra sína hreinskilna þegar það kemur að blakinu: „Þau eru mjög dugleg að segja í alvörunni hvað þeim finnst. Þau eru ekki að segja að við séum góðar þegar við erum ekki frábærar.“ „Ég viðurkenni það alveg að þegar ég tapa er ég ekki spennt að koma heim,“ bætti Matthildur við. „Maður var stundum alveg stressaður þegar maður spilaði illa og hugsaði: Mig langar helst ekki að tala við mömmu og pabba strax, út af því þau eru hreinskilin og að fara að segja eitthvað.“ „En á sama tíma, þegar maður vinnur og þegar það gengur vel þá hrósa þau manni.“ Helena tók í sama streng: „Stundum segi ég bara: Ég vil ekki tala um þetta, ég vil ekki tala um leikinn.“ „Ég held líka að mamma hafi verið meira stressuð fyrir þessum bikarleikjum heldur en við,“ sagði Elísabet. „Að fá þrjár alveg bandbrjálaðar ef við myndum tapa.“ „Gefðu mér boltann!“ Matthildur spilar sem uppspilari og stjórnar því oft hver fær að skora stigin. Og stundum er Elísabet ekki sátt með ákvarðanir systur sinnar: „Það getur alveg gerst að Elísabet komi til mín þegar ég er búin að spila tvo bolta upp á einhvern annan og bara: „Matthildur, ég er tilbúin. Gefðu mér boltann!“ „Maður getur verið aðeins hreinskilnari við systur sínar,“ segir Elísabet. „Og þær munu fyrirgefa manni fljótar heldur en kannski einhver annar inni á vellinum. Sem hefur alveg sína kosti og galla.“ Væru til í einn bikar á mann Þær systur hafa einnig spilað allar saman með íslenska landsliðinu síðustu tvö ár. „Það var svona í fyrsta skipti sem við vorum allar saman, geðveikt,“ sagði Helena og hinar tvær tóku undir. Auk þess að vera bikarmeistarar urðu þær systur deildarmeistarar fyrr í vetur og stefna svo á Íslandsmeistaratitilinn. Þrjár systur að vinna þrjá bikara eða einn á mann. „Ég panta stærsta, sagði Helena að lokum.