Leiðindaveður víða um land og fjöldi vega á óvissustigi

Alldjúp lægð fer til norðausturs fyrir sunnan land í dag. Henni fylgir vaxandi norðaustan- og austanátt, víða allhvasst eða hvasst og snjókoma seinni partinn, en stormur eða rok allra syðst og þar fellur úrkoman ýmist sem rigning, slydda eða snjókoma. Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Undir kvöld má búast við talsverðri ofankomu á Austurlandi, en þá fer að draga úr vindi og úrkomu sunnanlands. Hiti yfirleitt um eða undir frostmarki. Það er því útlit fyrir leiðindaveður víða um land þegar líður á daginn og gular viðvaranir taka gildi í flestum landshlutum. Við suðurströndina hvessir strax í kringum hádegi, en á Norðurlandi taka viðvaranirnar gildi undir kvöld. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er fjöldi vega um land allt á óvissustigi og gætu lokast með stuttum fyrivara. Hægt er að fylgjast með því á umferðin.is . Norðlæg átt á morgun, víða 8-15 m/s og él, en 13-20 og snjókoma á Austurlandi fyrripart dags. Suðvestantil verður hins vegar þurrt að mestu. Frost 1 til 7 stig. Hægari vindur á miðvikudag, áfram kalt og él á víð og dreif, en þó blæs líklega eitthvað fyrir austan fram eftir degi.