Tveimur þjófum vísað úr landi

Tveimur körlum hefur verið vísað úr landi vegna þjófnaðar. Talið er að mennirnir hafi komið til landsins til að stunda brotastarfsemi, en þeir voru handteknir örfáum dögum eftir komuna til landsins. Þýfi fannst á dvalarstað þeirra og þeir játuðu sök, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mönnunum, erlendum ríkisborgurum á þrítugs- og fertugsaldri, var jafnframt bönnuð endurkoma til Íslnads, öðrum í sjö ár og hinum í sex ár. RÚV / Sölvi Andrason