Fréttastofa RÚV
Þjóðaröryggisráð Írans hótar því að leggja tundurdufl þvert yfir Persaflóa ef árásir verða gerðar á strandlengju landsins eða eyjur. Í yfirlýsingu ráðsins segir að allar helstu leiðir um flóann myndu því lokast ef árás yrði gerð. „Komi til þess þá verður staðan á Persaflóa því sem næst sú sama og í Hormússundi í langan tíma,“ segir í yfirlýsingu ráðsins. Á laugardag krafðist Donald Trump Bandaríkjaforseti þess að Íranar opnuðu aftur fyrir alla skipaumferð um Hormússund innan tveggja sólarhringa. Hann hótaði því að orkuverum landsins yrði gjöreytt ef Íranar stæðu ekki við sitt. Írönsk stjórnvöld hafa hleypt skipum nokkurra vinveittra þjóða, á borð við Kína, Indland og Pakistan, í gegnum Hormússund. Árásir hafa aftur á móti verið gerðar á skip þeirra sem írönsk stjórnvöld telja óvinveitt. Markaðir bregðast við hótunum helgarinnar Hormússund er einkar mikilvæg siglingaleið sem skilur að Persaflóa og Ómanflóa. Um sundið er um fimmtungur allrar olíu heimsins fluttur. Eftir að sundinu var svo gott sem lokað hefur olíuverð rokið upp. Áhrifa þess er talið eiga eftir að gæta á heimshagkerfið allt. Olíuverð hefur haldið áfram að hækka og hlutabréfaverð í Asíu og Evrópu lækkaði við opnun markaða í morgun. Lækkun á hlutabréfaverði í morgun er viðbragð markaða við hótunum Bandaríkjaforseta að mati greinanda sem BBC ræðir við . Ef til árása Bandaríkjanna kæmi þýddi það enn frekari stigmögnun stríðsins sem myndi líklega leiða til þess að Íranar svöruðu í sömu mynt.
Go to News Site