Fréttastofa RÚV
Starfsmaður sem grunaður var um kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri hélt áfram störfum í sex vikur eftir að málið kom upp. Málið var rannsakað í tvígang og fellt niður. Um miðjan ágúst 2024 greindi fimm ára stúlka, nemandi á Tröllaborgum, frá meintu kynferðisbroti starfsmanns þar. Lögreglu var tilkynnt um málið, en rannsókn felld niður, að sögn Sævars Þórs Jónssonar, lögmanns foreldranna. Maðurinn hélt áfram störfum næstu sex vikurnar og samkvæmt heimildum fréttastofu játaði hann meint brot sitt fyrir ættingja, en dró það til baka. Þá hóf lögregla aftur rannsókn sem var líka felld niður. Ætla að tilkynna framgöngu lögreglu Sævar Þór segir að foreldrar stúlkunnar telji framgöngu lögreglu í málinu ámælisverða og ætla að tilkynna hana til nefndar um eftirlit með lögreglu. Foreldrar barna á Tröllaborgum fengu síðan tölvupóst frá fræðslusviði bæjarins fyrir nokkrum dögum um að meint kynferðisbrot starfsmanns leikskólans gegn barni þar hefði verið til rannsóknar haustið 2024. Svo virðist sem foreldrarnir hafi almennt ekki vitað af málinu fyrr en umræður sköpuðust um það í facebookhópnum Mæðratips í síðustu viku. Stjórnendur á fræðslusviði bæjarins vildu ekki veita fréttastofu viðtal en í skriflegum svörum segir að þegar upplýsingar bárust um brotið hafi verið talið að það hefði gerst utan leikskólans og því ekki tilefni til upplýsinga til foreldra. Fræðsluyfirvöldum hafi borist vitneskja á samfélagsmiðlum um að meint atvik hefði verið innan leikskólalóðar, verið sé að rýna í málið og reyna að læra af því. Þá segir í skriflegu svari Akureyrarbæjar að á næstunni haldi fræðsluyfirvöld fund með lögreglu og barnavernd þar sem skoða á hvort forsendur séu til endurupptöku málsins.
Go to News Site