Grátleg vítakeppni gerði út um HM draum Heimis
Fréttastofa RÚV

Grátleg vítakeppni gerði út um HM draum Heimis

Heimir Hallgrímsson og Írland mættu Tékklandi í umspilsleik um sæti á heimsmeistaramótinu 2026 í kvöld. Fyrstu mínúturnar voru fjörugar og Heimir og hans menn fengu dæmda vítaspyrnu á 19. mínútu. Troy Parrot fór á punktinn og kom Írum yfir, 1-0. Svo á 23. mínútu fékk írska liðið hornspyrnu. Sú rataði í teiginn og úr varð mikill darraðadans sem endaði með því að boltinn fór af tékkneska markverðinum og í netið, 2-0. Fjórum mínútum síðar fengu Tékkar svo dæmda vítaspyrnu. Þar lagaði Patrik Schick stöðuna fyrir sína menn, 2-1. Tékkar náðu framlengingu í blálokin Staðan hélst óbreytt allt þar til á 86. mínútu því þá fengu Tékkar aukaspyrnu sem rataði inn í teig. Ladislav Krejci skallaði þá boltann í netið, 2-2, og kom leiknum um leið í framlengingu. Tékkar sóttu hart að marki Írlands í framlengingingunni en hvorugt liðið fann sigurmark. Því þurfti að fara alla leið í vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara. Írska liðið skoraði úr fyrstu þremur spyrnunum og Tékkar úr fyrstu tveimur en Kelleher varði þriðju spyrnu Tékklands. Liðin voru því jöfn, 3-3, þegar fimmta umferð hófst. Alan Browne steig þá á punktinn fyrir Íra en vítið fór beint í hendur markvarðar Tékka. Jan Kliment hafði þá örlög Tékklands í sínum höndum og hann skoraði úr þeirra síðustu spyrnu af öryggi. Tékkar munu því mæta Danmörku á heimavelli á þriðjudag í úrslitaleik um sæti á mótinu. Danmörk vann viðureign sína við Norður- Makedóníu öruggt nú í kvöld. 4-0.

Go to News Site