Hlutfall óbólusettra barna eykst
Fréttastofa RÚV

Hlutfall óbólusettra barna eykst

Hlutfall óbólusettra barna er að aukast í Finnlandi samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarstofnun um heilsu og velferð (THL) í Finnlandi. Í frétt finnska ríkisútvarpsins YLE um málið segir að hæsta hlutfall barna sem eru alveg óbólusett sé á Álandseyjum. 5,2% þriggja ára barna þar hafa engar bólusetningar, og um 3% barna í héruðunum Austur- Uusimaa, Norður-Helsingjabotni og Päijät-Häme. Til samanburðar er hlutfall óbólusettra barna í Austur-Finnlandi um 1%. Mia Kontio, teymisstjóri bólusetningaáætlunar THL, segir að margir þessara sjúkdóma sem bólusett er gegn séu sérlega hættulegir ungum börnum. Aðeins um 92% barna sem fædd eru árið 2018 hafa fengið MMRV-bóluefnið en það verndar gegn mislingum, hettusótt, rauðum hundum og hlaupabólu. Þetta hlutfall hefur lækkað þrjú ár í röð. Sérfræðingar í bólusetningum segja að hlutfallið verði að vera 95% að minnsta kosti, svo hægt sé að einangra mislingasmit og koma í veg fyrir hættulega útbreiðslu sjúkdómsins. Síðasta haust hóf THL að þjálfa og leiðbeina heilbrigðisstarfsfólki á Álandseyjum og í Austur-Uusimaa um hvernig hægt sé að styðja við foreldra sem eru óvissir með bólusetningar fyrir börn sín. Kontio segir að það sé mikilvægt að foreldrar sem eru að íhuga að bólusetja börnin sín geti leitað til heilbrigðisstarfsfólks og átt yfirvegað samtal um áhyggjur sínar. Nokkuð er um að sænskir foreldrar sem aðhyllast öfga-hægriskoðanir hafa flust til Álandseyja til þess að geta haft börn sín í heimakennslu en heimakennsla er almennt bönnuð í Svíþjóð, segir í frétt YLE.

Go to News Site