Lækka skatta á eldsneyti vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum
Fréttastofa RÚV

Lækka skatta á eldsneyti vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum

Pólsk stjórnvöld ætla að lækka virðisaukaskatt af eldsneyti úr 23% niður í 8% vegna síhækkandi olíuverðs. Olíuverð hefur rokið upp síðan Bandaríkin og Ísrael gerðu árásir á Íran fyrir tæpum mánuði. Það er nú í slíkum hæðum að annað eins hefur ekki sést síðan innrás Rússa í Úkraínu hækkaði verðið upp úr öllu valdi. Auk þessara ráðstafana ætla pólsk stjórnvöld að lækka olíugjöld og þá mun orkumálaráðherra landsins setja verðþak á eldsneytislítrann á degi hverjum. „Við höfum ákveðið að grípa til aðgerða þótt við vitum fullvel að staðan á eldsneytismarkaði í Póllandi og í heiminum stýrist aðallega af því sem gerist í stríðinu í Mið-Austurlöndunum,“ sagði Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, eftir ríkisstjórnarfund í gær. Auk alls þessa verða nýir skattar lagðir á hagnað olíufélaga, eitthvað sem Tusk segir að komi í veg fyrir að þau geti hagnast á olíukrísunni á kostnað „pólskra skattgreiðenda, pólskra ökumanna“. Aðgerðunum er ætlað að lækka bensínverð um allt að 30 krónur á lítrann. Lítri af bensíni kostar um og yfir 230 íslenskar krónur þessa dagana í Póllandi. Frumvarp um þessar breytingar verður lagt fyrir pólska þingið í dag. Því verður hraðað þar í gegn og ný lög gætu tekið gildi áður en næsta vika er liðin.

Go to News Site