Fundu nýjar ferðir fyrir 3600 farþega Icelandair
Fréttastofa RÚV

Fundu nýjar ferðir fyrir 3600 farþega Icelandair

Fella þurfti niður ellefu flugferðir frá Keflavíkurflugvelli í gærmorgun og var tíu ferðum seinkað þangað til seinni partinn vegna óveðursins sem gekk yfir landið. „Þetta voru 3600 farþegar sem hafa verið endurbókaðir með nýrri ferðaáætlun. Fyrst, við náðum að koma nokkrum í flug strax í gær en flestir þeirra fá flug þá í dag eða á morgun,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. Appelsínugul veðurviðvörun var í gildi fyrripart dags. Strax seinni partinn í gær var flugáætlun þó komin á réttan kjöl. Allt flug var á áætlun í morgun. „Þannig að við erum bara nokkuð stolt af því að hafa náð áætlun strax á kjöl aftur og að koma öllum farþegum með öðru flugi, við þurftum að setja upp eitt aukaflug en annars höfum við náð að koma farþegum með öðru áætlunarflugi okkar,“ segir Guðni. Slæm spá aftur í dag Búist er við vondu veðri aftur í dag og eru samgöngur í lamasessi víða á landinu vegna vinda og snjókomu. Á suðaustanverðu landinu er útlit fyrir ofsaveður með sandfoki og vegalokunum. Ekki er þó búist við að veðrið hafi mikil áhrif á flug að öðru leyti en að innanlandsflug til Ísafjarðarfellur niður vegna veðurs. Fylgst verður með veðri og samgöngutruflunum í dag á fréttavaktinni hér fyrir neðan. Veðrið í gær hafði sömuleiðis áhrif á innanlandsflug þar sem sjö ferðum til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar var aflýst í gær. Guðni segir að flestum þeim farþegum verði komið á áfangastað í dag utan Ísafjarðar þar sem enn er röskun þar vegna veðurs í dag. Þrátt fyrir óveðrið var Keflavíkurflugvöllur áfram opinn og segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi ISAVIA, að óveður hafi yfirleitt mest áhrif á áætlanir flugfélaga frekar en flugvöllinn sjálfan. Halda þurfti flugbrautum ruddum og tryggja bremsuskilyrði. „Flugvellir eins og Keflavíkurflugvöllur eru alltaf opnir. Við þurfum að geta tekið á móti neyðarflugi sem skyndilega þarf að koma til lendingar í vondu veðri,“ segir hann. „En auðvitað geta komið upp aðstæður þar sem erfitt er að þjónusta flugvélar vegna veðurs,“ segir Guðjón.

Go to News Site