Fréttastofa RÚV
Akureyrarlistinn kynnti í dag sjö efstu frambjóðendur sína fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Þórhallur Jónsson skipar efsta sætið á listanum sem varð til þegar hann tapaði kosningu um oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins. Berglind Ósk Guðmundsdóttir hlaut þá 61 atkvæði gegn 55 atkvæðum Þórhalls á röðunarfundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á lista. Þórhallur var varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu. Hann greindi frá því í viðtali við Morgunblaðið eftir að úrslit lágu fyrir að hann hygðist bjóða fram eigin lista. Sjö efstu sæti á lista nýja framboðsins voru kynnt í dag. Þau skipa: Þórhallur Jónsson – framkvæmdastjóri & varabæjarfulltrúi Karen Sigurbjörnsdóttir – mannauðsfulltrúi & flíspeysumamma Helgi Steinar Halldórsson – fasteignasali & ljósamaður Kristrún María Björnsdóttir – doktorsnemi Darri Rafn Hólmarsson – tölvunarfræðingur & plötusnúður Dana Rán Jónsdóttir – sérfræðingur & líftæknifræðingur Vilmundur Aðalsteinn Árnason – framkvæmdastjóri & fyrrverandi sjómaður
Go to News Site