Linda Líf í landsliðinu í fyrsta sinn
Fréttastofa RÚV

Linda Líf í landsliðinu í fyrsta sinn

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta tilkynnti í dag hvaða leikmenn skipa landsliðshóp Íslands í leikjunum við England og Úkraínu í undankeppni HM. Leikirnir verða spilaðir á Laugardalsvelli 14. og 18. apríl, fyrst við Úkraínu og svo við England. Þrjár breytingar frá síðustu leikjum Þrjár breytingar eru á landsliðshópnum frá síðustu leikjum, útileikjunum við Spán og England í undankeppninni í byrjun mars. Arna Eiríksdóttir, Katla Tryggvadóttir og Linda Líf Boama koma inn fyrir Elínu Helenu Karlsdóttur, Karitas Tómasdóttur og Berglindi Rós Ágústsdóttur. Linda Líf Boama sem er 24 ára og spilar með Kristianstad í Svíþjóð spilaði með Víkingi á síðustu leiktíð, en var í Þrótti áður en hún fór til Víkings. Hún er nú í íslenska A-landsliðshópnum í fyrsta sinn. Landsliðshópurinn Markverðir: Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Inter Mílanó (Ítalíu) Fanney Inga Birkisdóttir, Häcken (Svíþjóð) Telma Ívarsdóttir, Rangers (Skotlandi) Útileikmenn: Glódís Perla Viggósdóttir, Bayern München (Þýskalandi) Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Bröndby (Danmörku) Ingibjörg Sigurðardóttir, Freiburg (Þýskalandi) Guðrún Arnardóttir, Hammarby (Svíþjóð) Arna Eiríksdóttir, Vålerenga (Noregi) Sædís Rún Heiðarsdóttir, Vålerenga (Noregi) María Catharina Ólafsd. Gros, Djurgården (Svíþjóð) Alexandra Jóhannsdóttir - Kristianstad (Svíþjóð) Katla Tryggvadóttir, Fiorentina (Ítalíu) Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Inter Mílanó (Ítalíu) Ída Marín Hermannsdóttir, FH Hildur Antonsdóttir, Madríd (Spáni) Sandra María Jessen, Köln (Þýskalandi) Birta Georgsdóttir, Genoa (Ítalíu) Sveindís Jane Jónsdóttir, Angel City (Bandaríkjunum) Hlín Eiríksdóttir, Fiorentina (Ítalíu) Diljá Ýr Zomers, Brann (Noregi) Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, Leipzig (Þýskalandi) Thelma Karen Pálmadóttir, Häcken (Svíþjóð) Linda Líf Boama, Kristianstad (Svíþjóð)

Go to News Site