Fimm angistarfull kvíðarokklög á föstudegi
Fréttastofa RÚV

Fimm angistarfull kvíðarokklög á föstudegi

Twenty One Pilots – Drag Path Lagið Drag Path kom fyrst út í fyrra í takmörkuðu upplagi og vakti töluverða athygli. Núna í febrúar sendu Twenty One Pilots það frá sér ásamt teiknimyndbandi og nú er það að springa út á TikTok og í útvarpinu í USA enda gríðarlega grípandi slagari. Wire – 23 Years Too Late (24 Years Later Edit) Þá er það enska pönk- eða nýbylgjusveitin Wire sem er alls ekki eins vinsæl og hún ætti að vera. Þeir félagar eru búnir að vera bralla við heimildarmyndina People in a Film undanfarið og sendu af því tilefni frá sér nýja útgáfu af laginu 23 Years Too Late. Edgehill – Doubletake Þá er það efnilegu gaurarnir í Edgehill frá Nashville og lagið þeirra, Doubletake, sem kom út fyrir hálfu ári eða svo en er búið að vera bubbla hægt og rólega upp á yfirborðið. Þetta er virkilega grípandi klassískt bandarískt alt-rokk sem minnir á svona eitt og annað en kannski aðallega Weezer. Cardinals – St. Agnes Það er eitthvað sérstakt í gangi þessa dagana á Írlandi og hvert tónlistaratriðið á fætur öðru sprettur upp. Hljómsveitin Cardinals er frá Cork og gaf út fyrstu plötuna sína Masquerade um miðjan febrúar og er svo sem ekkert að finna upp hjólið en þetta er hressandi hjá þeim. The Afghan Whigs – House of I Hljómsveitin The Afghan Whigs hefur verið starfandi í 40 ár og á sér traustan aðdáendahóp þótt hún sé svo sem engin Guns N' Roses. Til að halda upp á afmælið sendu þeir frá sér lagið House of I sem er ansi skemmtilegur og hressandi banger með tilvísunum í Stones og Stooges. Fimman á spottanum

Go to News Site