Fréttastofa RÚV
„Þau sögðu mér fleiri sögur eins og þegar hún fékk lánaðan hund í næsta húsi. Hún sagði fólkinu þar að hún ætlaði að kynna hundinn fyrir börnunum svo að þau kynntust dýrum. [...] En þegar hún kom með hundinn batt hún strákinn minn upp við skilrúm í stofunni, svona tréskilrúm, hillur; batt hann þar og atti hundinum að honum og skipaði krökkunum að gera það líka og æsa hundinn upp þannig að hann urraði í átt að stráknum. Og þau sögðu þarna urrdan bítt´ann, eða eitthvað svoleiðis. Hann var stjarfur þarna af hræðslu og hann var hræddur við hunda í fjölda ára á eftir og kannski enn,“ segir Marta Gunnarsdóttir sem var 25 ára einstæð, móðir þegar hún sendi dóttur sína og son á fósturheimilið til Waltraud Paulsen í Mosfellsbæ árið 1974. Sonur hennar var fjögurra ára en dóttir hennar tveggja ára. Börn Mörtu bjuggu hjá Waltraud í tvö ár og upplifðu harðræði og ofbeldi sem hefur fylgt þeim æ síðan segir Marta. Börn Mörtu vilja ekki koma í viðtal um þessa reynslu en samþykktu að hún segði sögu þeirra. Rætt er við Mörtu og fjallað er um fósturheimili Waltraud Paulsen í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Kona sem sendi börnin sín á fósturheimili til Waltraud Paulsen í Mosfellssveit segir að dvöl þeirra hafi haft djúpstæð áhrif á líf fjölskyldunnar. Hún vill að heimilið verði rannsakað. Vill rannsókn á heimilinu Marta segir að eftir að börnin hennar hafi flutt aftur heim árið 1976 hafi þau smám saman byrjað að opna sig um reynsluna af dvölinni hjá Waltraud. Þau hafi meðal annars sagt henni að Waltraud hafi látið þau borða eigin ælu og dóttir hennar var líka beitt kynferðislegu ofbeldi á heimilinu. Í kjölfarið hafi hún tilkynnt ofbeldið til barnaverndar í Mosfellssveit. Marta segir að eftir þetta hafi Waltraud ekki lengur mátt taka börn í fóstur. Sonur hennar hafi farið verr út úr á vistinni hjá Waltraud en dóttir hennar. Hún segir að fyrir nokkrum árum hafi sonur hennar hitt annan mann sem bjó á heimilinu og að þeir hafi rætt um að kæra Waltraud til lögreglunnar. Af því hafi hins vegar ekki orðið. Marta segir að vist barnanna á heimili Waltraud hafi fylgt fjölskyldunni í 50 ár. Hún segir að samviskubitið hafi nagað hana í öll þessi ár. „Ég er með bullandi samviskubit yfir að hafa sent börnin í þessar aðstæður.“ Marta segir að hún vilji að heimilið verði rannsakað nú í kjölfar Bakkakotsmálsins sem mikið hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Til stendur að skipa rannsóknarnefnd um Bakkakot og mögulega fleiri sambærileg heimili. „Það má alveg rannsaka þetta og koma því á hreint hvað gerðist þarna með því að ræða við fólk sem var þarna. [...] Þetta má ekki bara vera svona, það verður að laga þetta. Það verður líka að koma öðru fólki í skilning um það að þetta gengur ekki, svona framkoma gagnvart börnum. Þetta hefur haft áhrif á okkur fjölskylduna allt lífið.“ Fyrri tvo þættina af Þetta helst um fósturheimilið í Mosfellssveit má hlusta á hér:
Go to News Site